
Gluggaskipti
Við sjáum um allt ferlið, frá mælingum og vali á gluggum til ísetningar og vandaðs frágangs.
Nánar um gluggaskiptiALHLIÐA SMÍÐAÞJÓNUSTA
Við tökum að okkur gluggaskipti, endurbætur og nýbyggingar. Vönduð vinnubrögð frá fyrstu mælingu til síðasta handtaks.
01 / ÞJÓNUSTAN OKKAR
Við sinnum öllum verkum, stórum sem smáum. Hvort sem þú ert að endurnýja, byggja við eða byrja frá grunni.

Við sjáum um allt ferlið, frá mælingum og vali á gluggum til ísetningar og vandaðs frágangs.
Nánar um gluggaskipti
Almennt viðhald og endurbætur á fasteignum. Við finnum hentugar lausnir fyrir minni viðgerðir og umfangsmeiri verkefni.

Almenn húsasmíði og verkefni tengd nýbyggingum, með áherslu á fagleg vinnubrögð, góð samskipti og vandaðan frágang.
FRÁ MÆLINGUOKKAR SÉRÞEKKING
Við höfum unnið með VELFAC-glugga frá árinu 2011 og verið þjónustuaðilar VELFAC og Rationel á Íslandi frá 2024.
Við vinnum náið með Húsasmiðjunni, sem flytur inn gluggana, og aðstoðum þig við að finna lausn sem hentar þinni fasteign.
Við útvegum einnig varahluti í VELFAC-glugga og erum sérfræðingar í viðhaldi þeirra.
Við skoðum þarfir fasteignarinnar og mælum fyrir gluggum.
Við aðstoðum við valið og fáum tilboð frá Húsasmiðjunni.
Við sjáum um gluggaskiptin og leggjum metnað í lokafráganginn.
02 / UNNIN VERK
Gluggaskipti, endurbætur og nýbyggingar. Í hverju verkefni leggjum við áherslu á vönduð vinnubrögð og góðan frágang.
PALLASMÍÐI OG ÚTISVÆÐI
Pallasmíði í sumarparadís þar sem náttúran fékk að njóta sín. Útisvæðið sameinar gufubað, heita og kalda potta og fyrirmyndar útieldhús.

GLUGGASKIPTI
Endurnýjun glugga í íbúðarhúsi. Við sáum um mælingar, ísetningu og frágang að innan sem utan, með áherslu á að nýju gluggarnir féllu vel að húsinu.

STÁLGRINDARHÚS
Uppbygging stálgrindarhúss, frá reisningu burðargrindar til þaks og lokunar. Vandaður frágangur var í fyrirrúmi á öllum stigum verksins.

GLUGGAÍSETNING
Gluggaísetning í Vigtarhúsinu.

GLUGGAÍSETNING
Við sáum um ísetningu 1.600 glugga í Hlíðarenda.
03 / UM SS SMÍÐI
SS Smíði ehf. var stofnað árið 2000 af Sigvalda Steinari Haukssyni, húsasmíðameistara og byggingarstjóra.
Eigendur fyrirtækisins í dag eru Sigvaldi og Þórir Sigvaldason, húsasmíðameistari og iðnfræðingur. Í gegnum árin höfum við komið að fjölbreyttum smíðaverkefnum og byggt upp mikla reynslu.
Gluggaskipti hafa lengi verið stór þáttur í okkar starfi. Við höfum meðal annars haldið námskeið um gluggaísetningar í samstarfi við Húsasmiðjuna.
Eigendur
04 / NÆSTA VERKEFNI
Gluggaskipti, endurbætur eða eitthvað alveg nýtt? Hafðu samband og fáðu tilboð í þitt verkefni.
Sendu okkur stutta lýsingu, staðsetningu og myndir. Við heyrum svo í þér!